Fornafn |
Ólafur Lárusson [1, 2] |
Fæðing |
5 mar. 1906 [2] |
Atvinna |
jan. 1941 [1] |
Háseti á vb. Pilot GK-201. |
|
Pilot GK 201 Skipið var smíðað í Skotlandi og umbyggt fyrir vestan árið 1921. |
Andlát |
31 jan. 1941 [1] |
Ástæða: Fórst af vélbátnum Pilot GK-201 frá Ytri-Njarðvík. |
- Nóttina milli 30. og 31. jan. fór vb. Pilot frá Lóndröngum áleiðis til Keflavíkur. Þegar á nóttina leið fór veður versnandi og var á norðan stormur og hríð. Veður og sjór var svo slæmt, er kom í sunnanverðan Faxaflóa, að ekki þótti ráðlegt að halda lengur áfram. Var þá lagt út ljósdufli og andæft við það fram til kl. sjö um morguninn. Er birta tók, sáu skipverjar til lands og hugðu sig vera 7 sjómílur norður af Garðskaga. Var þá hugsað til að halda ferðinni áfram og reynt að taka inn ljósduflið og fóru 7 menn fram á til þess. En í sömu andránni og mennirnir voru að innbyrða duflið, skall feikilegur brotsjór á bátinn og tók út 5 mennina. Um leið og þetta skeði fór báturinn í kaf og virtist þeim, er í stýrishúsinu voru, að hann mundi sökkva með öllu. En fyrir snarræði skipstjórans, Daníels Ögmundssonar, tókst að setja vélina á fulla ferð og við það lyfti báturinn sér. Af mönnunum, sem tók út, er það að segja að tveim þeirra tókst að bjarga, en þrír drukknuðu. Báturinn fylltist af sjó og var nú tekið til að ausa hann og síðan haldið til Keflavíkur. [1]
|
Greftrun |
Í votri gröf - Lost at sea |
|
Hellnakirkjugarður, Breiðuvíkurhr., Snæfellsnessýslu:
Til minningar um Friðrik Guðbjörn Jónsson, Ólaf Jakob Jónsson, Jónas Hallgrímsson, Reimar Eiríksson, Ólaf Lárusson, Anton Björn Björnsson, Elínu Ólafsdóttir, Árnýju Kristínu Magnúsdóttir, Ágúst Trausta Jóhannsson, Ragnar Magnús Pétursson & Halldór Rúnar Júlíusson
|
Nr. einstaklings |
I11404 |
Legstaðaleit |
Síðast Breytt |
12 mar. 2021 |