Árni Jónsson Ísfjörð

Árni Jónsson Ísfjörð

Male 1867 - 1925  (57 years)

Personal Information    |    Media    |    Notes    |    Sources    |    Event Map    |    All    |    PDF

  • Name Árni Jónsson Ísfjörð  [1, 2, 3
    Birth 4 Aug 1867  Höfðaströnd, Grunnavíkurhr., N-Ísafjarðarsýslu, Íslandi Find all individuals with events at this location  [1, 3, 4
    Biskupsskjalasafn - Biskupsdæmi Íslands fermingarskýrslur (1882-1882), opna 128/197
    Biskupsskjalasafn - Biskupsdæmi Íslands fermingarskýrslur (1882-1882), opna 128/197
    Home 1870  Höfðaströnd, Grunnavíkurhr., N-Ísafjarðarsýslu, Íslandi Find all individuals with events at this location  [1
    Census 1920  Smiðjustíg 7, Reykjavík, Íslandi Find all individuals with events at this location  [4
    Home 1925  Þingholtsstræti 15, Reykjavík, Íslandi Find all individuals with events at this location  [2
    Occupation 1925  [2
    Háseti á togaranum Fieldmarshal Robertson.  
    Fieldmarshal Robertson
    Fieldmarshal Robertson
    Mynd fengin hjá Sigurjóni T. Jósefssyni, fær hann kærar þakkir fyrir.
    Death 8 Feb 1925  [2
    Jarðarför og minningarathöfn - Árni Jónsson & Þorbjörg Magnúsdóttir
    Jarðarför og minningarathöfn - Árni Jónsson & Þorbjörg Magnúsdóttir
    Burial Í votri gröf - Lost at sea Find all individuals with events at this location  [2
    Headstones Submit Headstone Photo Submit Headstone Photo 
    Person ID I21482  Legstaðaleit
    Last Modified 19 Jun 2024 

    Father Jón Jóakimsson
              b. 15 Jun 1838, Marðareyri, Grunnavíkurhr., N-Ísafjarðarsýslu, Íslandi Find all individuals with events at this location
              d. 24 Jun 1910, Ísafirði, Íslandi Find all individuals with events at this location (Age 72 years) 
    Mother Sigurfljóð Sakaríasdóttir
              b. 10 Feb 1838, Stakkadal, Sléttuhr., N-Ísafjarðarsýslu, Íslandi Find all individuals with events at this location
              d. 22 Dec 1911, Ísafirði, Íslandi Find all individuals with events at this location (Age 73 years) 
    Family ID F5497  Group Sheet  |  Family Chart

    Family Þorbjörg Magnúsdóttir
              b. 19 Sep 1870, Mel, Staðarsveit, Snæfellsnessýslu, Íslandi Find all individuals with events at this location
              d. 30 May 1925 (Age 54 years) 
    Notes 
    • Í manntalinu 1910 eru þau Árni og Þorbjörg til húsa í Aðalstræti 11 á Ísafirði, þar eru haldin fimm heimili og í húsinu búa 22 alls. Árni er þar sagður fæddur 6. ágúst 1873 eða sjö árum yngri en í manntalinu 1901. Þorbjörg er sögð fædd 19. september 1872, giftingarár 1900, þau hafi flutt í bæinn 1898 og eigi tvö börn á lífi, en eitt dáið. Börn þeirra eru Geirþrúður Sara fædd 6. september 1900 og Ólafur Tryggvason Árnason fæddur 8. apríl 1902. Auk þeirra er á heimilinu Sigurfljóð Sakaríasdóttir móðir Árna, ekkja og ómagi, hjú Guðrún Bjarney Jónsdóttir, fædd 1879 og Sigríður Þorbjörg Þórarinsdóttir 5 ára, dóttir hennar? Árni er sagður stunda sjómennsku, en ekki er getið um vinnuveitanda.

      Þann 6. júlí 1911 eignast þau á Ísafirði dótturina Ástu, en virðast fljótlega eftir það taka sig upp og flytja til Reykjavíkur. Í manntali árið 1920 eru þau til húsa að Smiðjustíg 7 í Reykjavík, þar eru haldin þrjú heimili, alls eru þar til húsa 14 manns. Hjá Árna og Þorbjörgu búa börn þeirra þrjú, Geirþrúður Sara tvítug, Ólafur Tryggvason, átján ára skrifari hjá Landssímanum og Ásta níu ára. Árni er sagður sjómaður og beykir og það kemur fram í manntalinu að þau hafi flutt í sóknina árið 1911.
      [5]
    Children 
     1. Geirþrúður Sara Árnadóttir
              b. 6 Oct 1900, Ísafirði, Íslandi Find all individuals with events at this location
              d. 5 Mar 1932, Reykjavík, Íslandi Find all individuals with events at this location (Age 31 years)
     2. Ólafur Tryggvason Árnason
              b. 8 Apr 1902, Ísafirði, Íslandi Find all individuals with events at this location
              d. 28 Dec 1992, Borgarspítalanum, Reykjavík, Íslandi Find all individuals with events at this location (Age 90 years)
     3. Ásta Árnadóttir
              b. 6 Jul 1911, Ísafirði, Íslandi Find all individuals with events at this location
              d. 4 Jun 2002 (Age 90 years)
    Family ID F5498  Group Sheet  |  Family Chart
    Last Modified 19 Jun 2024 

  • Notes 
    • Samkvæmt manntali 1890 var Árni að Bakka í Hnífsdal, sagður 22 ára, skráður vinnuhjú hjá Þorvarði Sigurðssyni og Elísabetu Kjartansdóttir, sem þar bjuggu ásamt fjórum uppkomnum börnum, tökubarni og fimm vinnuhjúum. Á Bakka bjuggu þá einnig hjónin Valdimar Þorvarðarson og Björg Jónsdóttir ásamt þremur börnum sínum ungum og fjórum vinnuhjúum.

      Kjartan Jónsson á Hrauni, faðir Elísabetar, átti á sinni tíð allan Hnífsdalinn, en þegar hann gamlaðist nokkuð, skipti hann jörðum og milli barna sinna og kom Bakki í hlut Elísabetar. Hún giftist Þorvarði árið 1856 og bjuggu á Bakka frá 1863. Þau voru merkismanneskjur og settu svip á Hnífsdalinn á sinni tíð, Þorvarður var góður búhöldur og átti jafnan skip fyrir landi eins og aðrir bændur í Dalnum og hafði forystu um jarðabætur. (Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps, III. bindi, 1967-1920, bls. 186)

      Ekki er ósennilegt að Árni hafi stundað sjóinn ásamt því að vinna að búskapnum. Hversu lengi Árni dvaldi í Hnífsdal er ekki vitað, en í manntalinu árið 1901 er sagt að hann hafi flutt til Ísafjarðar árið 1896.

      Samkvæmt manntali 1901 búa þau Árni Jónsson sagður 35 ára (samkvæmt því fæddur 1866, en ekki 1868 eins og í manntalinu 1890) og Þorbjörg Magnúsdóttir kona hans 30 ára, lúterstrúar fædd í Staðarstaðasókn í Vesturamti, í húsi Mörtu Kristjánsdóttur á Ísafirði ásamt hjú þeirra Kristínu Guðmundsdóttur 21 árs og dóttur Geirþrúði S. Árnadóttur eins árs. Árni er sagður stunda sjómennsku, en ekki getið um vinnuveitanda, og að hann hafi flutt í sóknina árið 1896, en ekki er getið um hvenær Þorbjörg flutti, en giftingarár þeirra er sagt 1899.
      --------------------------------------
      Eftir að Árni Jónsson flutti suður með fjölskyldu sína stundaði hann sjómennsku á ýmsum skipum. Á þessum árum gerðu Hellyers bræður í Hull út fjóra togara frá Hafnarfirði og á einum þeirra var Vestfirðingur skipstjóri, Einar Magnússon, en honum hafði Árni kynnst á Ísafirði. Togaraplássin lágu ekki á lausu á þessum árum, en þar sem Einar vissi að Árni var harðduglegur sjómaður, sem kunni að verka fisk, talaðist svo til að Árni kæmi um borð Í Fieldmarshal Robertson og hefði m.a. yfirumsjón með söltun og frágangi afla.

      Síðan var haldið til veiða, en þann 5. Febrúar 1925 kom togarinn inn til Þingeyrar. Áhöfnin sendi skeyti til Alþýðublaðsins, sem birtist daginn eftir, og hljóðaði svo:
      Góð líðan, slæm tíð Skipverjar Robertson (Alþýðublaðið, 6 febrúar bls.)

      Halaveðrið brast á þrem dögum síðar og í því fórst togarinn Fieldmarshal Robertson og öll áhöfn hans.
      Fjölskyldan var þá flutt að Þingholtsstræti 15, en það var skammt stórra högga á milli því rúmum þrem mánðum síðar, 30 maí, lést Þorbjörg móðir Ólafs. Geirþrúður Sara, elsta systir Ólafs lést í mars 1932, aðeins 31 árs að aldri. Í manntali 1930 var hún skráð netahnýtingarkona til heimilis að Smiðjustíg 6 í Reykjavík.
      [5]

  • Photos
    Árni Jónsson Ísfjörð
    Árni Jónsson Ísfjörð

    Portrait Photos
    Árni Jónsson Ísfjörð
    Árni Jónsson Ísfjörð

  • Event Map
    Link to Google MapsBirth - 4 Aug 1867 - Höfðaströnd, Grunnavíkurhr., N-Ísafjarðarsýslu, Íslandi Link to Google Earth
    Link to Google MapsHome - Bær/hús: Höfðaströnd, Grunnavíkursókn, Ísafjarðarsýsla. Stétt/staða: barn þeirra. Hjúskapur: Ógiftur. Aldur: 2. Fæðingarstaður: hér í sókn. - 1870 - Höfðaströnd, Grunnavíkurhr., N-Ísafjarðarsýslu, Íslandi Link to Google Earth
    Link to Google MapsCensus - Bær/hús: Smiðjustígur 7, Reykjavíkurkaupstaður (31), Reykjavík. Aldur: 5. ágúst 1873. Stétt/staða: Húsbóndi. Hjúskapur: G [Gift(ur)]. Fæðingarstaður: Höfðaströnd Grunnavík Ísafjarðarsýsla. Atvinna: Sjómaður og Beykir. Aldur: 47. Trúarbrögð: Þjóðkirkja. - 1920 - Smiðjustíg 7, Reykjavík, Íslandi Link to Google Earth
    Link to Google MapsHome - 1925 - Þingholtsstræti 15, Reykjavík, Íslandi Link to Google Earth
     = Link to Google Earth 
    Pin Legend  : Address       : Location       : City/Town       : County/Shire       : State/Province       : Country       : Not Set

  • Sources 
    1. [S54] Manntal.is - 1870.

    2. [S227] Alþýðublaðið, 10.03.1925, s. 2.

    3. [S1391] Biskupsskjalasafn - Biskupsdæmi Íslands fermingarskýrslur (1882-1882), opna 128/197.

    4. [S40] Manntal.is - 1920.

    5. [S1393] Inga Steinunn Ólafsdóttir.
      Skjal fengið frá Ingu Steinunni Ólafsdóttur (18-06-2024).



This site powered by The Next Generation of Genealogy Sitebuilding v. 14.0.5, written by Darrin Lythgoe © 2001-2024.

Maintained by Rakel Bára Þorvaldsdóttir. | Data Protection Policy.

The headstone images found on this site are for personal use only. Copying images to commercial websites (that require paid subscriptimons) or publications is prohibited. If in doubt, please contact me. Please remember to link back if you use photographs from this site.