Skipamyndir

» Sýna allr     «Fyrri «1 ... 42 43 44 45 46 47 48 49 50 ... 79» Næsta»     » Hefja myndasýningu

Hleð inn síðu...



Reykjavíkin

Skipið Reykjavíkin kom til Reykjavíkur 25. mars 1873. Var þetta nýsmíðað danskt skip, tvísiglt með skonnortulagi og var stærð þess mæld 27,38 lestir. Svo er skýrt frá í blöðum sem töluðu um þessa skipakomu, að Reykjavíkin hafi ,,kostað 2900 ríkisdali, en ýmislegt vantaði til seglbúnaðar og annarra áhalda og útgerðar, er kaupa varð að auki." Var það Geir Zoëga kaupmaður sem stóð fyrir þessum kaupum, ásamt Kristni Péturssyni í Engey og Jóni Þórðarsyni í Hlíðarhúsum.

Reykjavíkin var bæði á fiskveiðum sem og hákarlaveiðum í gegnum árin. En í lok mars 1889, er hún var á hákarlaveiðum fyrir sunnan land, lenti hún í hinu mesta illviðri og er talið að hún hafi farist með manni og mús 31. mars 1889.

Skoða umfjöllun.


Eigandi frumritsMálverk Benedikts Gröndal, 1876
SkráarnafnReykjavíkin.jpg
Skráarstærð82.5k
Stærð900 x 620
TengistSigurbjörn Bjarnason (Atvinna); Steindór Bjarnason (Atvinna); Theódór Kristinn Guðmundsson (Atvinna); Magnús Hjartarson (Atvinna); Jón Jónsson (Atvinna); Jón Halldór Jörgensson (Atvinna); Magnús Oddsson (Atvinna); Einar Pálsson (Atvinna); Guðmundur Sigfússon (Atvinna); Einar Sigurðsson (Atvinna)

» Sýna allr     «Fyrri «1 ... 42 43 44 45 46 47 48 49 50 ... 79» Næsta»     » Hefja myndasýningu




Scroll to Top